Heldur Baldur áfram að hrella FH-inga? 18. september 2014 06:00 Baldur skorar hér eitt af sex mörkum sínum gegn FH. vísir/daníel
Tveir leikir fara fram í Pepsi-deild karla í dag, en þar mætast fjögur efstu lið deildarinnar. Stjarnan heimsækir Víkinga og FH tekur á móti KR, en með þessum leikjum lýkur 14. umferð. Sú var tíðin að FH hafði heljartök á KR, en Hafnarfjarðarliðið vann 14 af 16 leikjum liðanna í deild og bikar á árunum 2004-2010. En eftir að Rúnar Kristinsson tók við KR hefur dæmið snúist við. Vesturbæjarliðið tapaði reyndar fyrstu tveimur leikjum sínum gegn FH undir stjórn Rúnars (4-0 í bikarúrslitum og 0-1 í Pepsi-deildinni 2010), en síðan hefur KR aðeins tapað tvisvar sinnum fyrir FH. Frá því að tímabilið 2011 hófst hafa KR og FH mæst níu sinnum í deild og bikar; KR hefur unnið sjö þessara leikja, en FH tvo. Enginn KR-ingur virðist njóta þess jafn mikið að spila gegn FH og Baldur Sigurðsson. Hann hefur skorað í fimm af níu leikjum liðanna síðan 2011, eða samtals sex mörk. Sé litið nánar á markatölfræði Mývetningsins síðan 2011 kemur í ljós að sex af 28 mörkum hans í deild og bikar hafa komið gegn FH, eða 21% af öllum mörkum hans. Baldur hefur verið næst duglegastur að skora gegn Keflavík, hans gamla liði, en hann hefur skorað fimm mörk gegn Suðurnesjaliðinu. Rúnar segir í samtali við Fréttablaðið að hans menn muni spila til sigurs í kvöld, líkt og ávallt. „Við áttum okkur á því að það verður erfitt að blanda okkur í toppbaráttuna en við munum gefa allt okkar í leikinn,“ sagði hann en KR er níu stigum á eftir FH. „Það er oftast skemmtilegt að spila í Hafnarfirðinum og þetta verður hörkuleikur.“
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Líflátshótunum rignir yfir Víkinga: „Djöfull er þetta lasið“ Fótbolti Tiger svaf ekki eftir morðtilræðið gegn Trump Golf Einn sá skrautlegasti mættur á Opna breska Golf Víkingar með augun á leik í Albaníu í kvöld Fótbolti „Getur ennþá orðið stórkostlegt tímabil“ Fótbolti Enska sambandið vill Guardiola og er tilbúið að bíða Enski boltinn Heimsleikarnir gætu byrjað klukkan sex um morguninn Sport Segja að Alexander-Arnold sé opinn fyrir því að fara til Real Madrid Enski boltinn Ætla sér inn á Ólympíuleikana með hjálp dómstóla Sport McIlroy hunsaði Tiger óvart í mánuð Sport Fleiri fréttir KR fær ungan framherja frá Húsavík Sjáðu hvernig Fylkir skellti ÍA og FH vann HK Andrea í sólina í Tampa Uppgjörið: FH - HK 3-1 | FH-ingar aftur á sigurbraut Ómar Ingi: Það er í skoðun að styrkja liðið Ómar: Þetta var sigur liðsheildarinnar Uppgjörið: Fylkir - ÍA 3-0 | Fylkismenn skelltu Skagamönnum niður á jörðina Amanda Andradóttir seld til Hollandsmeistaranna Sjáðu mörkin og rauða spjaldið úr leik Vestra og KA Njarðvíkingar töpuðu stigum á móti botnliðinu Sjáðu ískaldan Guðmund Magnússon klára KR og bæði rauðu spjöldin Uppgjörið og viðtöl: Fram - KR 1-0 | Rúnar með fullt hús gegn KR Bergþóra Sól kemur heim úr atvinnumennsku og fer í Víking Brynjar Björn tekur við af Olgeiri sem var óvænt sagt upp Ægir Jarl farinn frá KR til AB í Danmörku Leikmenn Blika í útgöngubanni í Skopje „Ekki segja þjálfaranum það“ „Ég hef engan áhuga á því að vera á bekknum“ „Það erfiðasta sem þú gerir í fótbolta“ Leikdagurinn: Átti gæðastundir með dóttur sinni og fór í Lystigarðinn fyrir leik Sveinn Sigurður farinn vestur „Það vita þetta allir í liðinu að hann er sterkastur þarna“ Jason Daði seldur til Grimsby „Óskiljanlegt að þetta mark hafi fengið að standa“ Hneykslaðir á fjarveru Jasonar Daða: „Ekki sama lið án hans“ Sjáðu umdeilt mark FH og vítadóminn sem færði KA stig Víkingar án tveggja sterkra leikmanna í Meistaradeildinni á morgun Bestu mörkin um botnslaginn: „Það var skjálfti beggja vegna“ Ívar Örn: Ótrúleg vinnubrögð dómarans Uppgjör: FH - KA 1-1 | Akureyringar stigu lítið skref í átt frá falldraugnum Sjá meira