Fótbolti

Fullkomin byrjun og nú er bara að nýta það

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Hollendingar mæta í Laugardalinn í kvöld og mæta þar íslenska landsliðinu í metaham. Í fyrsta sinn í sögunni hefur íslenska landsliðið fullt hús og hreint mark eftir tvo leiki. Eins og sjá má fyrir ofan þá er markatalan í ár í sérflokki hvað varðar sögu Íslands í undankeppnum.

„Þetta er fullkomin byrjun og nú er bara að nýta það og taka það með sér inn í þennan erfiða leik á móti Hollandi,“ sagði Hannes Þór Halldórsson, markvörður.

Theódór Elmar Bjarnason og Ari Freyr Skúlason hafa skilað bakvarðarstöðunum með miklum sóma en þeir eru vanalega miðjumenn. „Við erum með marga leikmenn sem eru vanalega miðjumenn. Það er ég, Theódór Elmar, Emil Hallfreðs, Birkir Bjarna og svo auðvitað Aron og Gylfi. Það þýðir kannski að við erum vel spilandi lið og getum leyst erfiðar stöður,“ sagði Ari Freyr Skúlason. Ari Freyr kom inn í vinstri bakvörðinn í síðustu keppni og nú leikur Theódór Elmar það eftir.

Theódór Elmar Bjarnason hefur spilað mjög vel.Vísir/Getty
„Elmar er búinn að koma frábærlega inn í liðið. Mér finnst hann búinn að vera gallalaus í þessum tveimur leikjum,“ sagði Ari um kollega sinn hinum megin.

„Ég er búinn að vera sáttur við mína frammistöðu,“ sagði Theódór Elmar. „Ég er ekki vanur því að spila bakvörðinn og þetta er aðeins öðru vísi fókus. Það hefur gengið vel og ég er líka með Kára og Ragga sem eru við hliðina á mér og að tala við mig. Þeir hafa leiðbeint mér vel þannig að það hefur verið auðvelt að aðlagast.“

„Ef við ætlum að enda í fyrstu tveimur sætunum þá getum við ekki verið að sætta okkur við tap þótt að þeir séu besta lið í heimi. Ef við verðum skynsamir á morgun og allir ná sínum toppleik eins og á móti Tyrkjum þá getum við náð fínum úrslitum,“ sagði Theódór Elmar. Hollendingar eru þegar búnir að tapa einum leik og pressan er mun meiri á þeim.

„Þeir líta á Ísland sem lið sem þeir eiga að vinna. Þeir munu hins vegar fá erfiðan leik og þetta er mjög óþægilegur leikur fyrir þá því kröfurnar á þá eru að vinna okkur og helst nokkuð auðveldlega,“ sagði Hannes.

Ari Freyr Skúlason í sigurleiknum á móti Tyrklandi.Vísir/Getty
Ari hefur fulla trú á góðum úrslitum. „Ef við höldum okkar striki áfram, trúum á okkur og höldum áfram að berjast hver fyrir annan þá mun þetta ganga vel. Þeir eru örugglega smá smeykir við okkur en sýna okkur samt virðingu. Það á ekki að vera létt að koma til Íslands,“ sagði Ari Freyr að lokum.

Hér fyrir neðan má sjá yfirlit yfir markatölu íslenska landsliðsins eftir tvo fyrstu leikina í undankeppni EM og HM síðan að íslenska landsliðið tók fyrst þátt í riðlakeppni fyrir HM 1974.

Hannes Þór Halldórsson fagnar hér einu af sex mörkum íslenska liðsins.Vísir/Getty
xxx


Tengdar fréttir

Rúrik: Erum ekki eins og gamla Ísland

Rúrik Gíslason, vængmaður íslenska landsliðsins, segir að íslenska landsliðið í dag spili ekki eins fótbolta og "gamla" Ísland.

Gylfi bara á strigaskónum á æfingunni

Íslenska karlalandsliðið æfði í dag á Laugardalsvellinum og margra augu voru á Gylfa Þór Sigurðssyni sem meiddist í sigurleiknum í Lettlandi á föstudagskvöldið. Framundan er leikur við Hollendinga á morgun.

Hollendingum var svolítið kalt í Dalnum í kvöld - myndir

Hollenska landsliðið æfði á Laugardalsvellinum í kvöld en framundan er leikur á móti sjóðheitu íslensku landsliði á sama stað klukkan 18.45 annað kvöld. Íslenska landsliðið getur náð sex stiga forskoti á Holland með sigri.

Birkir Bjarna: Holland var bara bónusleikur fyrir mót

Birkir Bjarnason og félagar hans í íslenska karlalandsliðinu í fótbolta sitja í efsta sæti A-riðils í undankeppni EM 2016 eftir tvær umferðir og framundan er leikur við stórlið Hollendinga á Laugardalsvellinum á morgun.

Hiddink: Svolítið öfundsjúkur út í íslenska liðið | Myndband

Guus Hiddink, þjálfari hollenska landsliðsins, hitti her hollenska blaðamanna fyrir æfingu liðsins í kvöld og blaðamannafundur hans fór að mestu fram á hollensku. Hiddink svaraði þó einni spurningu á ensku og hrósaði þar íslenska landsliðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×