Ekkert heilbrigðisvottorð á störf landbúnaðarráðherra Jón Hákon Halldórsson skrifar 10. nóvember 2014 07:00 Ólafur Stephensen framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda. „
Okkur finnst miður að landbúnaðarráðherrann hafi ekki viljað takast efnislega á við innflutningsfyrirtæki fyrir dómi,“ segir Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda. Hæstiréttur hefur staðfest frávísun í máli Haga gegn íslenska ríkinu vegna ákvörðunar landbúnaðarráðherra um að synja fyrirtækinu um innflutningskvóta á tilteknum tegundum osta og lífrænt ræktuðum kjúklingum. „Það stendur skýrt í búvörulögunum að ef það sé skortur á tiltekinni landbúnaðarvöru þá eigi ráðherrann og skuli ráðherrann gefa út innflutningskvóta á lægri tolli. Það er það sem ráðherrann lætur hjá líða að gera og lagaramminn er þannig að hann kemst upp með það,“ segir Ólafur. Ekki hafi fengist nein efnisleg niðurstaða um ákvörðun ráðherrans. „Hann bara sleppur á lagatæknilegu atriði og þetta er ekkert heilbrigðisvottorð á hans störf. Þetta er galli á kerfinu,“ segir Ólafur og bætir því við að það sé grundvallarregla í réttarfari að fyrirtæki og einstaklingar geti látið reyna á ákvarðanir og athafnir eða athafnaleysi stjórnvalda fyrir dómstólum. „Fyrst lögin eru þannig úr garði gerð að það er ekki hægt, þá held ég í fyrsta lagi að löggjafinn þurfi að endurskoða löggjöfina. Sjá til þess að það sé hægt að gera ráðherrann ábyrgan ef hann kýs að fara ekki að lögum í þessu efni,“ segir Ólafur.
Mest lesið Skip úr skuggaflotanum hægði grunsamlega mikið á sér Erlent Reyndu að ræna hraðbanka Innlent Áfengissala á helgidögum þjóðkirkjunnar stöðvuð af lögreglu Innlent Komu hesti til bjargar úr gjótu Innlent Rússar vara við því að hrapað sé að ályktunum áður en rannsókn lýkur Erlent Hættulega heitir dagar fleiri og mannskæðari en áður Erlent Holtavörðuheiði enn lokuð Innlent Spáir stillu og miklu svifryki um áramótin Veður Icelandair skoðar næstu skref í þróun flugflotans Innlent Margt bendi til að Rússar hafi haft aðkomu að flugslysinu Erlent Fleiri fréttir Holtavörðuheiði enn lokuð Reyndu að ræna hraðbanka Komu hesti til bjargar úr gjótu Icelandair skoðar næstu skref í þróun flugflotans Áfram töluverð snjóflóðahætta á Vestfjörðum Áfengissala á helgidögum þjóðkirkjunnar stöðvuð af lögreglu Snjóflóðahætta á Vestfjörðum og frumsýning Yermu Holtavörðuheiðinni lokað aftur í kvöld Sex voru fluttir með þyrlunni Gamla ríkið falt og milljónir fylgja Telja skemmdir í Bláfjöllum minniháttar Súðavíkurhlíð opin til 16 Alvarlegt bílslys í Öræfum Rólegt á aðfangadag en mikil aðsókn í viðtalstíma í desember Snjóflóð féllu á Súðavíkurhlíð Rúta rann yfir rangan vegarhelming út í móa Týndu vagni með jólamáltíðum sjúklinga á bráðamóttökunni Snjóflóð féll á Súðavíkurhlíð og rólegt í Kvennaathvarfinu Skógaskóli verður hótel Grímuskylda á Landspítalanum Búið að opna Hellisheiði og Holtavörðuheiði Strætó rann á bíl og ruslaskýli Töldu að ævilöng vesælmennska biði „barnanna á mölinni“ Jólakindin Djásn á Stokkseyri Standa vaktina á jóladag: „Þetta er bara eins og hina dagana“ Standa vaktina við lokunarpósta á jóladag Flugferðir hafnar að nýju í Keflavík Þak fauk nánast af hlöðu Fagna jólunum í Betlehem í skugga stríðs Hellisheiði og Þrengsli opna ekki fyrr en á morgun Sjá meira