Björgvin Páll Gústavsson hefur farið mikinn í síðustu tveimur leikjum Íslands á EM og hann þarf að halda uppteknum hætti gegn Makedóníu í dag.
„Við erum aðeins byrjaðir að stúdera þá og munum halda því áfram í dag,“ sagði Björgvin Páll eftir æfingu Íslands í gær en hún var tekin í hádeginu. Það var afslappað andrúmsloft á æfingunni og allir léttir og kátir.
Þarf að lesa Lazarov
Besti leikmaður Makedóna er örvhenta stórskyttan Kiril Lazarov sem leikur með Barcelona. Björgvin þarf að lesa hann og koma í veg fyrir að hann skjóti íslenska liðið í kaf.
„Makedónar eru með klóka leikmenn. Þeir spila leiðinlegan handbolta en eru með frábæra leikmenn eins og Lazarov. Það þarf að halda fókus og mjög mikilvægt að hefja leikinn vel gegn þeim. Svona lið á það til að gefast upp og því er mikilvægt að sýna styrk okkar og íslenska hjartað strax í byrjun. Því lengur sem þeir hanga inni í leiknum, þeim mun erfiðara verður þetta fyrir okkur.“
Fólki finnst oft skrítið að það séu til menn sem vilja fá boltann í sig á yfir hundrað kílómetra hraða. Það er einmitt fátt sem gleður Björgvin eins mikið.
„Það er skringileg atvinna að vera fyrir. Ég fæ borgað ágætlega fyrir það og fæ að vera í landsliðinu. Ég er því í fínni vinnu,“ sagði Björgvin brosmildur.
Mega ekki fá blóð á tennurnar
Þó að Makedóníumenn hafi verið þungir og arfaslakir í tapi gegn Ungverjum í fyrsta leik milliriðilsins, þá tekur Aron Kristjánsson landsliðsþjálfari liðið mjög alvarlega en liðin mætast klukkan þrjú að íslenskum tíma.
„Við vitum að þeir eru stórhættulegir. Við spiluðum erfiðan leik gegn þeim á HM í fyrra. Þetta verður annað stríð. Þeir virkuðu vissulega þreyttir gegn Ungverjum. Byrjuðu af krafti og svo dró af þeim. Það er því mikilvægt að við byrjum af krafti og gefum þeim ekki blóð á tennurnar. Þá verða þeir stórhættulegir,“ segir Aron, en hvað með hinn hæga leik makedónska liðsins?
„Ef þeir fá að spila langar sóknir þá eru þeir líka hættulegir. Við þurfum að fá upp hraða í leikinn. Keyra í bakið á þeim og láta þá hlaupa. Vörnin sem þeir hafa verið að spila hentar okkur líka mjög vel.“
Einn besti leikmaður heims
Aron segir að það þurfi að hafa góðar gætur á fleirum en Kiril Lazarov í liði Makedóna.
„Hann er einn besti leikmaður heims. Línumennirnir eru sterkir. Miðjumaðurinn er góður einn á móti einum og markvörðurinn mjög góður. Þetta verður hörkuleikur.“
Björgvin Páll: Ég er í fínni vinnu
Henry Birgir Gunnarsson í Herning skrifar

Mest lesið





Arnar spilaði með besta „pöbbaliði“ Bretlands
Enski boltinn




Salah nálgast nýjan samning
Enski boltinn
