Fótbolti

Ólafur Ragnar einn fárra áhorfenda í Abú Dabí

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, er á Mohammed Bin Zayed-leikvanginum í Abú Dabí þar sem vináttulandsleikur Íslands og Svíþjóðar fer fram.

Fáir áhorfendur eru á leiknum sem hófst klukkan 16.00, eins og sjá má í meðfylgjandi myndskeiði, en völlurinn tekur rúmlega 42 þúsund manns í sæti.

Leikurinn er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport en einnig er hægt að fylgjast með gangi mála í beinni textalýsingu á Vísi.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×