Erlent

Rafbyssur og piparúði dugðu ekki á þennan viðskiptavin McDonald's

Stefán Árni Pálsson skrifar
Svakalegt atriðið á McDonald's í Maryland.
Svakalegt atriðið á McDonald's í Maryland. vísír
Marcus Anthony Moratelli, viðskiptavinur McDonald’s í Maryland í Bandaríkjunum, var í virkilega annarlegu ástandi inni á staðnum á dögunum.

Ástand hans var svo slæmt að kalla þurfti til lögreglumenn til að koma honum út. Það gekk aftur á móti alls ekki hjá þeim lögreglumönnum sem mættu á svæðið.

Moratelli var ítrekað skotinn með rafbyssum, gengið var í skrokk á honum og hann sprautaður með piparúða.

Hann neitaði aftur á móti að gefa sig á vald lögreglu og voru lögregluþjónarnir í stökustu vandræðum að handtaka manninn. Atvikið náðist auðvitað á myndband sem sjá má hér að neðan. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×