Erlent

Um 200 hvali rak á land á Nýja-Sjálandi

Atli Ísleifsson skrifar
Staðfest er að 24 hvalir hafi þegar drepist.
Staðfest er að 24 hvalir hafi þegar drepist.
Um tvö hundruð grindhvali rak á landi á syðri eyju Nýja-Sjálands fyrr í dag. Fleiri tugir björgunarmanna eru nú á staðnum og reyna að koma hvölunum aftur út á haf.

Staðfest er að 24 hvalir hafi nú þegar drepist. Andrew Lamason, talsmaður yfirvalda, segir í samtali við AP að hvalirnir hafi rekið á land við Farewell Spit þar sem hvalrek hafa verið tíð.

Lamason segir ekki öruggt að hvalirnir lifi reynsluna af þrátt fyrir að takist að koma hvölunum aftur á flot.

Sjá má myndband af vettvangi að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×