Erlent

90 börnum rænt í Suður-Súdan

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
vísir/afp
Að minnsta kosti 89 börnum var rænt í Malakal í Suður-Súdan í dag af meðlimum herskárra samtaka. Drengir eru þar í miklum meirihluta.

Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna greinir frá því vígamennirnir hafi umkringt þorpið og rænt börnunum af heimilum sínum og skólum. Talið er að drengirnir verði þjálfaðir sem hermenn, en hátt í tólf þúsund börn berjast í borgarastyrjöldinni í Suður-Súdan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×