Var með uppréttar hendur þegar lögreglan skaut hann til bana Stefán Ó. Jónsson skrifar 1. september 2015 21:12 Gilbert Flores hefur áður komist í kast við lögin. Vísir
Myndbandsupptaka sem rataði í fjölmiðla vestanhafs gefur til kynna að Gilbert Flores hafi verið með uppréttar hendur þegar hann var skotinn til bana af lögregluþjónum í San Antonio á föstudag. Myndbandið var birt á vefsíðu sjónvarpsstöðvarinnar KSAT í gær. Það má sjá hér að neðan en Vísir varar við myndefninu sem gæti vakið óhug. Töluverð ólga hefur verið í San Antonio, sem er í Texas-fylki, vegna málsins í dag en mannréttindasamtök hafa krafist svara frá lögregluyfirvöldum í borginni vegna málsins. „Myndbandið sýnir ekki öll samskiptin [milli lögregluþjónanna og Flores] en það vekur svo sannarlega upp alvarlegar spurningar um hvort þessi valdibeiting hafi verið réttlætanleg,“ er haft eftir Terri Burke, framkvæmdastjóra American Civil Liberties Union of Texas, samtaka sem berjast fyrir borgarlegum réttindum. Flores hefur áður komist í kast við lögin og var vopnaður að sögn lögreglunnar. Lögreglan hafði fengið ábendingu um ónæði frá heimili Flores og grunur lék á að hann hafi ráðist á sambýliskonu sína, sem var með skurð á höfði þegar lögreglumenn komu á vettvang. Lögreglan á að hafa reynt að yfirbuga manninn í tuttugu mínútur áður en gripið var til skotvopnanna. Af myndbandinu að dæma virðist Flores vera hlaupandi ber að ofan í lágreistu íbúðahverfi áður en hann nemur staðar. Hann virðist rétta upp hendurnar áður en tveir skothvellir heyrast og hann fellur til jarðar. Myndbandið var tekið upp á farsíma háskólanema sem hafði samband við KSAT-sjónvarpsstöðina sem birti myndbandið. Flores var flogið á sjúkrahús þar sem hann var úrskurðaður látinn skömmu síðar. Málið er nú til rannsóknar hjá lögregluyfirvöldum borgarinnar og að sögn talsmanns Alríkislögreglunnar mun embættið fylgjast grannt með rannsókn málsins.
Mest lesið Albert sýknaður Innlent Þorði ekki að hringja í lögregluna eftir að hafa kveikt í sumarbústað Innlent Farið yfir dóminn: Albert metinn trúverðugri en konan Innlent Starfsmenn þessara skóla fara í verkfall Innlent Mikið tjón eftir að herbergið fylltist af vatni Innlent Vaktin: Hvirfilbylir og flóð fylgja Milton Erlent Ekki síst erfitt þegar menn eru fjölskylduvinir til margra áratuga Innlent Efast um að málinu verði áfrýjað Innlent Verkfall samþykkt með 100 prósent atkvæða í leik- og grunnskólum Innlent Bein útsending: „Óveður aldarinnar“ skellur á Flórída Erlent Fleiri fréttir Fær mun minni fjárstuðning frá almenningi Gerðu andlitsmynd af stærstu pöddu jarðsögunnar Þrettán látist vegna Marburg-veiru og ekkert bóluefni til Hefur ekki enn þorað út í morgun Enn varað við ofsaveðri en hreinsunarstörf hafin Fréttamenn í bölvuðum vandræðum í óveðrinu Skotárás við ísraelskt fyrirtæki í Gautaborg Flugstjórinn lést í miðri flugferð Biden og Netanyahu ræddu aðgerðir Ísrael gegn Íran Vaktin: Hvirfilbylir og flóð fylgja Milton Milljónir án rafmagns og nokkrir látnir eftir að Milton gekk á land Bein útsending: „Óveður aldarinnar“ skellur á Flórída Sprengdu upp vöruskemmu fulla af drónum Ísland sagt „heimili vefþrjóta og einkennisþjófnaðar“ Gætu ekki flúið þótt þau vildu Tvö eftir í leiðtogakjöri breskra íhaldsmanna Stóð af sér vantrauststillögu Þrír fá Nóbelsverðlaun fyrir að afhjúpa uppbyggingu prótína Bein útsending: Hver fær Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biden kallaði Netanjahú „tíkarson“ og „slæman gaur“ X snýr aftur í Brasilíu Hugðust ráðast á fjölda fólks á kjördag og deyja píslardauða Biden mun freista þess að leggja Netanyahu línurnar varðandi Íran Segir Rússa reyna að skapa usla á götum Evrópu Milton safnar aftur krafti Afhöfðaður sex dögum eftir embættistöku Segja hermenn Kim líklega á leið til liðs við Rússa Segja Hezbollah höfuðlaus eftir dauða arftaka Nasrallah Trump sendi Pútín kóvidpróf á laun Lögregla upplýsir ekki um notkun andlitsgreiningarhugbúnaðar Sjá meira