Hermenn nauðguðu 221 konu í Darfur Samúel Karl Ólason skrifar 11. febrúar 2015 16:47 Frá þorpinu Tabit. Vísir/AFP
Súdanskir hermenn fóru hús úr húsi í þorpi í Darfur héraði og nauðguðu minnst 221 konu og stúlku í fyrra. Mannréttindasamtökin Human Rights Watch sögðu frá þessu í dag, en forstjóri Afríkudeildar samtakanna segir þetta nýjan lágpunkt í Darfur, þar sem fjölmörg ódæði hafa verið framin á síðustu árum. Tilkynningar um fjöldanauðganir í þorpinu Tabit heyrðust fyrst í október í fyrra. Sameinuðu þjóðirnar og Afríkubandalagið sögðust þó ekki finna sannanir. Súdanski hermenn fylgdist mjög náið með rannsókninni og höfðu áhrif á niðurstöður hennar, samkvæmt AP fréttaveitunni. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna fór þá fram að yfirvöld í Súdan leyfðu rannsókn að eiga sér stað. Þess í stað skipaði Omar al-Bashir, forseti Súdan, að skrifstofu HRW í landinu yrði lokað og hann hefur ekki hleypt aðilum frá Sameinuðu þjóðunum né Afríkubandalaginu að þorpinu síðan. Stjórnvöld í Súdan segja að þeirra eigin rannsókn hafi ekki fundið dæmi um eina nauðgun í þorpinu.Skýrsla HRW byggir á rúmlega 130 símtölum við þorpsbúa, vitni og liðhlaupa úr hernum. Þar kemur fram að allt að tíu ára stúlkum hafi verið nauðgað af hermönnum. Þá hafi sumum konum verið nauðgað margsinnis og jafnvel fyrir framan fjölskyldur þeirra. Samkvæmt niðurstöðum skýrslunnar staðfestu rannsakendur að 27 nauðganir hafi átt sér stað og fengu trúverðugar heimildir fyrir 194 nauðgunum. Skýrslan stimplar þá sem tóku þátt í árásunum og vissu af þeim sem stríðsglæpamenn. Frá 2003 hafa rúmlega þrjú hundruð þúsund manns látið lífið í átökum stjórnvalda og uppreisnarmanna í Darfur héraði. Þá hafa meira en fjögur hundruð þúsund manns þurft að flýja heimili sín.
Mest lesið Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Sagðir hafa fundið um 1.500 skilaboð milli Þorsteins og Jóhannesar Innlent Helgi hættur á Heimildinni Innlent Vandræðalegur starfsmaður rak Björn Leví burt frá vínbúðinni Innlent Fá að leita í innrituðum farangri farþega að þeim fjarstöddum Innlent Halla Hrund gengin til liðs við Framsókn og tekur sæti formannsins Innlent Auðkýfingurinn ekki lengur grunaður um dauða eiginkonunnar Erlent Ný könnun: Ómarktækur munur á Viðreisn og Sjálfstæðisflokknum Innlent „Óásættanlegt að fyrrverandi starfsfólki sé haldið í spennitreyju“ Innlent Heita hertum reglum í hælisleitendamálum Erlent Fleiri fréttir Heita hertum reglum í hælisleitendamálum Ætlar ekki að leyfa Úkraínu að eignast kjarnorkuvopn Bar fram samsæriskenningar á fyrsta kosningafundinum Auðkýfingurinn ekki lengur grunaður um dauða eiginkonunnar Kim sagður ætla að senda tólf þúsund menn til Rússlands Telja árásir sænskra unglinga runnar undan rifjum Írana Hafa birt myndskeið af síðustu augnablikum Sinwar Dauði Sinwar tækifæri til að binda enda á stríðið Fall Sinwar „upphafið að endinum“ Staðfesta andlát leiðtoga Hamas Leiðtogi Hamas „líklega“ felldur „Einstök sýning“ á getu Bandaríkjanna í loftárásum Mætti á Fox í gær og á í viðræðum um viðtal við Rogan Biður um meiri pening vegna „fáránlegra“ laga Banna Ítölum að finna staðgöngumæður erlendis Hundrað ára Carter búinn að kjósa Eftirspurn eftir jarðefnaeldsneyti gæti náð hámarki á þessum áratug Opinberaði „siguráætlun“ sína á þingi Klófestu leigumorðingja sem dulbjó sig sem gamlan mann Metsekt fyrir að mismuna gyðingum og banna þeim að fljúga Lagði Trump til 10 milljarða króna á þremur mánuðum Halda áfram árásum á Beirút en með gult spjald frá Bandaríkjunum Hugmyndir uppi um „úrvinnslumiðstöðvar“ utan Evrópusambandsins Lauk afplánun fyrir teikningu dóttur sinnar Stofna herfylki skipað mönnum frá Norður-Kóreu Sagður ekki munu ráðast gegn olíu- né kjarnorkuinnviðum Kosningafundur breyttist í undarlegt diskótek Saka yfirvöld í Indlandi um ofbeldi og morð í Kanada Fyrrum Stasímaður dæmdur fyrir fimmtíu ára gamalt morð Taugaeitur til að drepa þúsundir manna skilið eftir á glámbekk Sjá meira