Erlent

Reykingar bannaðar í Peking

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Yfir þrjú hundruð milljón manns reykja í Kína.
Yfir þrjú hundruð milljón manns reykja í Kína. vísir/getty
Reykingar verða bannaðar innandyra á opinberum stöðum í Peking, höfuðborg Kína, frá og með deginum í dag. Bannið gildir meðal annars fyrir veitingastaði, skrifstofur og almenningssamgöngur, en sé bannið ekki virt gæti sá hinn sami átt yfir höfði sér sekt sem hleypur á tugum þúsunda.

Yfir þrjú hundruð milljón manns reykja í Kína og talið er að rúm milljón deyi af völdum reykingatengdra sjúkdóma á ári hverju. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×