Erlent

Augnablikið þegar flugeldaverksmiðja sprakk náðist á myndband

Samúel Karl Ólason skrifar
Þessi mynd sínir augnablikið áður en verskmiðjan sprakk.
Þessi mynd sínir augnablikið áður en verskmiðjan sprakk.
Myndatökumaður náði myndbandi af því augnabliki þegar flugeldaverksmiðja sprakk í loft upp á sunnudaginn. Hann var að taka upp eld í byggingu þegar hann féll um koll vegna höggbylgjunnar frá sprengingunni. Sprengingin varð í litlu þorpi í Kólumbíu.

Sprengingin sendi logandi flugelda í allar áttir. Tveir slösuðustu og 17 heimili skemmdust.

Nærliggjandi vegum var lokað og slökkviliðsmenn börðust við gríðarstórt bál sem logaði eftir sprenginguna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×