Erlent

Furðulegur sjónvarpsþjófnaður náðist á myndband

Samúel Karl Ólason skrifar
Lögreglan segir konuna líklega hafa framið þjófnað með þessum hætti áður.
Lögreglan segir konuna líklega hafa framið þjófnað með þessum hætti áður. Skjáskot
Öryggismyndavélar raftækjaverslunar náðu sjónvarpsráni á myndband, þar sem kona stakk því undir kjól sinn og gekk eðlilega út úr versluninni. Lögreglan í Costa Rica hefur birt myndbandið til að fá hjálp almennings við að bera kennsl á konuna.

„Við teljum að þessi kona hafi mikla reynslu í svona þjófnaði þar sem það tók hana einungis þrettán sekúndur frá byrjun til enda,“ hefur The Mirror eftir talsmanni lögreglunnar. Þeir telja að annað hvort hafi hún æft sig heima eða framkvæmt aðra slíka glæpi.

Á myndbandinu sést konan ganga inn í verslunina, líta í kringum sig og taka upp sjónvarpsskjáinn, sem virðist þó ekki vera stór, og stinga honum á milli læranna. Þá gengur hún út aftur á rólegan máta.

Starfsmaður verslunarinnar segir engan hafa orðið var við þjófnaðinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×