Erlent

Drap tvo með öxi í Finnlandi

Atli Ísleifsson skrifar
Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Myndin tengist fréttinni ekki beint. Vísir/AFP
Lögregla í Finnlandi hefur handtekið mann sem grunaður er um að hafa drepið tvo menn með öxi í og fyrir utan veitingastað í borginni Oulu fyrr í kvöld.

Maðurinn réðst til atlögu gegn mönnunum á veitingastaðnum Tuira í samnefndu hverfi. Maðurinn flúði af vettvangi og beindi lögregla í kjölfarið þeim orðum til almennings að halda sig innandyra.

Í frétt Yle segir að árásarmaðurinn hafi flúið frá veitingastaðnum eftir hjólabraut, en fjöldi fólks í nágrenninu hafði þá leitað skjóls í nálægu kvikmyndahúsi.

Að sögn sjónarvotta handtók lögregla manninn í stigagangi í háhýsi í borgarhlutanum Myllyoja. Lögregla sat um húsið í að minnsta kosti klukkustund áður en maðurinn var handtekinn. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×