Erlent

Öskureið eiginkona skar tvisvar undan eiginmanni sínum

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Læknar og lögreglumenn leituðu í lengri tíma að limnum fyrir utan húsið en án árangurs. Talið er líklegast að flækingshundur eða - köttur hafi orðið fyrri til.
Læknar og lögreglumenn leituðu í lengri tíma að limnum fyrir utan húsið en án árangurs. Talið er líklegast að flækingshundur eða - köttur hafi orðið fyrri til. Mynd/CEN
Ósátt eiginkona í borginni Shangqiu í Kína hefur verið handtekinn fyrir að hafa skorið undan eiginmanni sínum. Hún lét ekki nægja að gera það einu sinni heldur endurtók verknaðinn eftir að gert hafði verið að sárum mannsins.

Breskir fjölmiðlar á borð við Mirror greina frá þessu og vísa í umfjöllun kínverskra miðla. Þar segir að hinn 32 ára Fan Lung, fimm barna faðir, hafi sent klúr skilaboð til 21 árs gamallar ástkonu sinnar. Lung gleymdi hins vegar að skrá sig út af aðgangi sínum og var þrítugri eiginkonu hans ekki skemmt er hún rakst á skilaboðin.

Konan er sögð hafa gripið skæri, farið rakleiðis í svefnherbergið þar sem maður hennar svaf og klippt af honum typpið. Lung var fluttur á spítala þar sem gert var að sárum hans og limurinn saumaður á.

Fleygði limnum út um gluggann

Reiðin var hins vegar ekki runnin af eiginkonunni sem laumaðist aftur inn á spítalann, skar aftur undan manninum og gott betur en það því í þetta skiptið fleygði hún limnum út um glugga.

Talsmaður spítalans í borginni segir að spítalinn hafi fyrst haft veður af síðari árásinni þegar ábending barst um að nakinn maður væri að berja konu fyrir utan spítalann. Starfsfólk hafi hlaupið út og séð sjúkling slá til konu en blóð streymdi niður með fótleggjum hans.

Læknar og lögreglumenn leituðu í lengri tíma að limnum fyrir utan húsið en án árangurs. Talið er líklegast að flækingshundur eða - köttur hafi orðið fyrri til.

Getuleysi skiptir engu

Farið var með Lung í aðgerð þar sem hann hafði misst mikið blóð. Líðan hans er sögð stöðug en andlegt ástand hans slæmt. Ástkona Lung sagði við komuna á spítalann að hún hefði enn í hyggju að giftast Lung við fyrsta tækifæri.

„Það skiptir engu þótt hann sé getulaus. Hann á fimm börn nú þegar.“

Eiginkona Lung er í haldi lögreglu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×