Ráðist á vinsælt hótel í Líbíu Atli Ísleifsson skrifar 27. janúar 2015 11:10 Hótelið í Trípolí. Vísir/Hotel Corinthia
Vopnaðir menn með möguleg tengsl við ISIS hafa drepið þrjá öryggisverði og eru með gesti hótelsins í gíslingu eftir að þeir réðust á hótel sem vinsælt er meðal erlendra ferðamanna í líbísku höfuðborginni Trípolí í morgun. Essam Al-Naas, talsmaður yfirvalda, segir að umsátursástand sé við Corinthia hótelið í miðborg Trípolí. Hassan al-Abey, starfsmaður hótelsins, segir að fimm grímuklæddir menn, klæddir skotheldum vestum, hafi ráðist á hótelið og skotið í allar áttir. Þá hafi mennirnir sprengt bíl í loft upp á bílastæði hótelsins.Í frétt Wall Street Journal kemur fram að Al-Abey segi að Evrópumenn hafi verið gestir á hótelinu. Ástandið í Líbíu hefur verið mjög óstöðugt frá því að Moammar Gadhafi, einræðisherra landsins, var hrakinn frá völdum og myrtur. Tvær ríkisstjórnir og þing eru nú starfandi í landinu, studdar af tveimur ólíkum uppreisnarhópum.Uppfært 13:10. Bæði AP og AFP greina frá því að fimm erlendir ríkisborgarar hafi látist í árásinni, til viðbótar við þá öryggisverði sem létust.Uppfært 15:48. Gíslatökunni á hótelinu virðist nú vera lokið. Þetta segir á vef Al Jazeera. Árásarmennirnir sprengdu sjálfa sig í loft upp inni á hótelinu. Bjarga tókst þeim sem var haldið í gíslingu, en þeirra á meðal voru átta Bandaríkjamenn.
Mið-Austurlönd Mest lesið Sögulegur dagur fyrir frönsku þjóðina að baki Erlent „Ástæða til að hafa áhyggjur“ Erlent Ferðamaður sofnaði undir stýri og ók á rútu Innlent Hrædd um að hún mæti óvart í gömlu vinnuna í fyrramálið Innlent Hundsbitum fari fjölgandi Innlent Vöknuðu á floti og stigu út með drulluna upp að hnjám Erlent Skúffukaka og mjólk vegna pirrings út af töppum Innlent Óður hundur réðst á tvo í Grafarvogi Innlent Hjólhýsi fauk af veginum í Borgarfirði Innlent „Fólk er einfaldlega hrætt“ Erlent Fleiri fréttir Sögulegur dagur fyrir frönsku þjóðina að baki „Ástæða til að hafa áhyggjur“ Franska þjóðfylkingin leiðir samkvæmt útgönguspám Vöknuðu á floti og stigu út með drulluna upp að hnjám „Fólk er einfaldlega hrætt“ Leitin að Slater blásin af Frakkar ganga að kjörborðinu Útlitið svart hjá Macron fyrir kosningar á morgun Bandarískum kjósendum líst illa á stöðuna í forsetaslagnum Ungur maður tekinn af lífi fyrir að hlusta á K-pop í Norður-Kóreu Efna til allsherjarleitar að Slater Mossack og Fonseca heitinn sýknaðir Segir Biden „algjörlega vanhæfan“ „Ég veit að ég er ekki ungur maður“ „Fíaskó næturinnar“ gæti kallað á nýjan frambjóðanda Ævilangt fangelsi fyrir morðið og nauðganirnar Biden augljóslega þyngdur af ellibelgnum Sakfelldur fyrir að myrða Emilie Meng Þakið á flugvelli í Nýju Delí hrundi vegna mikillar rigningar Biden hikandi og hás í fyrri kappræðum kosninganna Bein útsending: „Óvinsælustu frambjóðendur sem boðið hefur verið upp á“ Tilnefna Ursulu til að sitja fimm ár í viðbót Færeysku og grænlensku bætt við Google Translate Trump getur ekki gripið fram í fyrir Biden í nótt Krafa um hraða vaxtalækkun og Tækniskólinn rís í Hafnarfirði Fyrstu kappræðurnar í fjögur ár gætu skipt sköpum Eldur kviknaði í ráðuneyti Vill varúðarmerkingar á gjörunna matvöru Herforingi handtekinn eftir valdaránstilraun Valdaránstilraunin virðist hafa mistekist Sjá meira