Erlent

Fimm látnir eftir skotárás í Georgíuríki

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Af vettvangi.
Af vettvangi. vísir/ap
Fimm eru látnir og minnst tveir særðir að auki eftir skotárás í Georgíuríki í Bandaríkjunum. Árásin átti sér stað í Douglas-sýslu skammt frá Atlanta.

„Einhver fórnarlambanna eru systkin. Við getum upplýst að það yngsta var aðeins smábarn og þeir elstu fullorðnir,“ segir Stan Copeland, yfirmaður lögreglu í sýslunni. Árásarmaðurinn særði bæði fólk á götu úti og í húsi við götuna.

Að voðaverkinu loknu reyndi árásarmaðurinn að svipta sig lífi en ekki hefur verið gefið út hvort sú tilraun bar árangur eður ei. Systir hans sást skammt frá vettvangi í fylgd lögreglunnar tuldrandi að bróðir hennar hefði aldrei átt að hafa byssu undir höndum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×