Sökuð um að sviðsetja rán á syni sínum Samúel Karl Ólason skrifar 6. febrúar 2015 23:07 Vísir/Getty
Foreldrar sex ára drengs í Bandaríkjunum, auk ömmu hans og frænku, hafa verið sökuð um að hafa sett á svið mannrán til að kenna honum lexíu. Þau þóttust ræna honum þar sem hann var of viðkunnanlegur við ókunnuga. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu í Missouri, vildu þau hræða drenginn. Til þess fengu þau samstarfsmann frænku hans til að plata hann upp í bíl sinn, fyrir utan skólann hans. Maðurinn er sagður hafa hótað drengnum að hann myndi aldrei sjá foreldra sína aftur og að hann myndi negla hann við vegg. Þar að auki sýndi hann honum skammbyssu til að fá hann til að hætta að gráta, samkvæmt AP fréttaveitunni. Hendur og fætur drengsins voru bundnar og jakki var settur yfir hann. Þá fór maðurinn með hann á heimili foreldra drengsins þar sem hann var læstur niður í kjallara. Seinna leysti maðurinn drenginn og sagði honum að fara upp úr kjallaranum. Þar biðu foreldrar hans eftir honum og skipuðu þau honum að halda sér frá ókunnugu fólki. Samkvæmt lögreglunni töldu foreldrar drengsins sig ekki hafa gert neitt rangt. Þau hafi einungis viljað fræða son sinn um hættuna sem stafar af ókunnugu fólki. Þau hafa öll verið ákærð fyrir mannrán og vanrækslu.
Mest lesið Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Vandræðalegur starfsmaður rak Björn Leví burt frá vínbúðinni Innlent Sagðir hafa fundið um 1.500 skilaboð milli Þorsteins og Jóhannesar Innlent Fá að leita í innrituðum farangri farþega að þeim fjarstöddum Innlent Helgi hættur á Heimildinni Innlent Auðkýfingurinn ekki lengur grunaður um dauða eiginkonunnar Erlent Halla Hrund gengin til liðs við Framsókn og tekur sæti formannsins Innlent Ný könnun: Ómarktækur munur á Viðreisn og Sjálfstæðisflokknum Innlent „Óásættanlegt að fyrrverandi starfsfólki sé haldið í spennitreyju“ Innlent Hafa birt myndskeið af síðustu augnablikum Sinwar Erlent Fleiri fréttir Heita hertum reglum í hælisleitendamálum Ætlar ekki að leyfa Úkraínu að eignast kjarnorkuvopn Bar fram samsæriskenningar á fyrsta kosningafundinum Auðkýfingurinn ekki lengur grunaður um dauða eiginkonunnar Kim sagður ætla að senda tólf þúsund menn til Rússlands Telja árásir sænskra unglinga runnar undan rifjum Írana Hafa birt myndskeið af síðustu augnablikum Sinwar Dauði Sinwar tækifæri til að binda enda á stríðið Fall Sinwar „upphafið að endinum“ Staðfesta andlát leiðtoga Hamas Leiðtogi Hamas „líklega“ felldur „Einstök sýning“ á getu Bandaríkjanna í loftárásum Mætti á Fox í gær og á í viðræðum um viðtal við Rogan Biður um meiri pening vegna „fáránlegra“ laga Banna Ítölum að finna staðgöngumæður erlendis Hundrað ára Carter búinn að kjósa Eftirspurn eftir jarðefnaeldsneyti gæti náð hámarki á þessum áratug Opinberaði „siguráætlun“ sína á þingi Klófestu leigumorðingja sem dulbjó sig sem gamlan mann Metsekt fyrir að mismuna gyðingum og banna þeim að fljúga Lagði Trump til 10 milljarða króna á þremur mánuðum Halda áfram árásum á Beirút en með gult spjald frá Bandaríkjunum Hugmyndir uppi um „úrvinnslumiðstöðvar“ utan Evrópusambandsins Lauk afplánun fyrir teikningu dóttur sinnar Stofna herfylki skipað mönnum frá Norður-Kóreu Sagður ekki munu ráðast gegn olíu- né kjarnorkuinnviðum Kosningafundur breyttist í undarlegt diskótek Saka yfirvöld í Indlandi um ofbeldi og morð í Kanada Fyrrum Stasímaður dæmdur fyrir fimmtíu ára gamalt morð Taugaeitur til að drepa þúsundir manna skilið eftir á glámbekk Sjá meira