Erlent

Húðskammaði mann sem káfaði á henni í flugvél

Samúel Karl Ólason skrifar
Stór hópur kvenna kemur saman í Indlandi til að mótmæla órétti.
Stór hópur kvenna kemur saman í Indlandi til að mótmæla órétti. Vísir/AFP
Eldri maður var handtekinn í Indlandi nú á dögunum eftir að hafa káfað á stúlku í flugvél. Maðurinn er sagður hafa potað ítrekað í stelpuna á milli sætanna. Stúlkan tók sig til og húðskammaði manninn í vélinni og tók myndband af atvikinu sem nú hefur vakið mikla athygli.

Á vef DailyMail kemur fram að maðurinn hafi verið handtekinn, en svo hafi honum verið sleppt úr haldi. Myndbandið var birt 31. janúar og þar sést maðurinn halda höndum fyrir andliti sínu á meðan stúlkan skammar hann.

Þá segist stúlkan hafa fengið mikla hjálp frá lögreglunni og starfsmönnum flugfélagsins. Annað myndband af manninum hefur verið birt á netinu þar sem hann er að biðjast afsökunar á athæfi sínu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×