Erlent

Nokkur þúsund manns mættu til að láta andúð sína á Pegida í ljós

vísir/ap
Pegida samtökin, sem berjast gegn því sem þau kalla múslimavæðingu vesturlanda, héldu sína fyrstu mótmælagöngu í Austurríki í gærkvöldi.

Samtökin voru stofnuð í austurhluta Þýskalands og þar mæta allt að tuttugu þúsund manns í göngur sem þessar. Gangan í gærkvöldi, sem fram fór í Vín, var þó ekki eins fjölmenn þar sem aðeins nokkur hundruð manns létu sjá sig.

Rauna voru fleiri lögreglumenn á svæðinu en göngumenn og enn fleiri mótmælendur Pegida, en nokkur þúsund manns mættu til að láta andúð sína á samtökunum í ljós.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×