Erlent

Fjórir slösuðust þegar þak fór af strætisvagni í London

Atli Ísleifsson skrifar
Þrír farþegar strætisvagnsins og einn ökumaður bíls slösuðust.
Þrír farþegar strætisvagnsins og einn ökumaður bíls slösuðust. Mynd/Twitter
Fjórir slösuðust þegar þak fór af strætisvagni í London eftir að vagninum var ekið á tré á götunni Kingsway, nærri Holborn-lestarstöðinni í morgun.

Í frétt Telegraph segir að þrír farþegar og einn ökumaður bíls hafi særst þegar þakið rifnaði af vagninum. Strætisvagninn er númer 91 sem gengur milli Crouch End og Trafalgar-torgs.

Slökkvilið borgarinnar birtu myndir af vettvangi á Twitter-síðu sinni, en þar segir að meiðslin fólksins hafi einungis verið minniháttar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×