Erlent

Myrti samstarfsmann eftir hrekk

Samúel Karl Ólason skrifar
Peter Atem réðst á samstarfsmann sinn eftir hrekk.
Peter Atem réðst á samstarfsmann sinn eftir hrekk. Vísir/Getty
Bandaríkjamaðurinn Peter Atem hefur verið ákærður fyrir morð af fyrstu gráðu eftir að hann stakk samstarfsmann til bana í gær. Degi áður hafði Danny Vazquez kippt stól undan Atem í kjötvinnsluverksmiðju sem þeir unnu báðir.

Lögreglan segir að vitni hafi séð hnífstunguna. Samstarfsfélagar þeirra hafi sagt að síðustu orð Vazquez hafi verið: „Segið konunni minni að ég elski hana.“

Lögregluþjónar fundu Atem þar sem hann hafði falið sig í skúr. Hann hafði stungið sjálfan sig með hníf ­en skildi eftir miða sem á stóð: „Sjáumst í helvíti. Líf fyrir líf.“ Hann var fluttur á sjúkrahús þar sem hann undirgekkst skurðaðgerð. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×