Erlent

Skipti um brúðguma í miðri athöfn og giftist brúðkaupsgesti

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Konan bað einn gestanna um að giftast sér sem hann og gerði.
Konan bað einn gestanna um að giftast sér sem hann og gerði. Vísir/Getty
Indversk brúður giftist gesti í brúðkaupi sínu eftir að brúðguminn fékk flogakast og féll niður í athöfninni.

Brúðguminn hafði haldið því leyndu fyrir tilvonandi konu sinni og fjölskyldu hennar að hann væri flogaveikur.

Svo virðist sem að brúðurin hafi orðið nokkuð reið vegna þessa því á meðan maðurinn var á spítala ákvað hún að skipta um eiginmann. Bað hún því einn gestanna, mann úr fjölskyldu mágs síns, um að giftast sér og samþykkti hann það.

Þegar upphaflegi brúðguminn kom af spítalanum reyndi hann að telja konunni hughvarf en henni varð ekki haggað.

Samkvæmt frétt BBC voru maðurinn og fjölskylda hans í miklu uppnámi vegna málsins og tilkynntu það til lögreglu.

Lögreglan gat hins vegar lítið gert, maðurinn og konan sættust og tilkynning til lögreglu var dregin til baka.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×