Erlent

Miklar frosthörkur herja á íbúa austurhluta Bandaríkjanna

Atli ísleifsson skrifar
Frá borginni Philadelphia í Pennsylvaníuríki.
Frá borginni Philadelphia í Pennsylvaníuríki. Vísir/AP
Miklar vetrarhörkur herja nú á íbúa í austurhluta Bandaríkjanna og hafa veðurfræðingar spáð því að von sé frekari snjó og kulda.

Um tvö þúsund flugferðum hefur verið frestað vegna veðurs, fyrst og fremst frá flugvöllum í stórborgunum Boston og New York.

Spáð er frekari frosthörkum, meðal annars í borginni Philadelphia þar sem spáð er 28 stiga frosti.

Vísir/AP
Vísir/AP
Vísir/AP



Fleiri fréttir

Sjá meira


×