Erlent

Fékk að kveikja í húsi morðingja dóttur sinnar

Atli Ísleifsson skrifar
Diena Thompson lagði til að hús morðingjans yrði brennt til grunna.
Diena Thompson lagði til að hús morðingjans yrði brennt til grunna.
Diena Thompson, móðir stúlku sem var nauðgað og myrt árið 2009, fékk að kveikja í húsi morðingjans þegar slökkvilið stóð fyrir æfingu í síðustu viku.

Somer Thompson, 7 ára dóttur Dienu, var nauðgað og myrt í umræddu húsi í Orange Park í Flórída árið 2009 og kom morðinginn líkinu fyrir á öðrum stað þar sem það fannst nokkru síðar.

Á fimmtudaginn síðasta fékk Diena svo að brenna hús morðingjans til grunna í tengslum við æfingu hjá slökkviliði bæjarins. „Ég var stóri og grimmi úlfurinn í þetta skiptið,“ sagði Diena í samtali við News4Jax.

Jarred Harrell myrti Somer fyrir rúmum fimm árum síðan eftir að hafa rænt henni þegar hún var á leið heim úr skólanum.

Harrell afplánar nú lífstíðardóm og var hús hans fært Thompson-fjölskyldunni að gjöf. Lagði fjölskyldan þá til að það yrði brennt til grunna sem hefur nú verið gert.

Sjá má frétt News4Jax um málið að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×