Erlent

„Þú lætur svona því þið voruð einu sinni þrælar“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Málið er komið inn á borð hjá lögreglunni í London og er til rannsóknar.
Málið er komið inn á borð hjá lögreglunni í London og er til rannsóknar. mynd/youtube
Myndband af konu í neðanjarðarlest í London gengur nú eins og eldur um sinu á veraldarvefnum en þar talar hún við þeldökkan mann og vill hún meina að hann sé reiður út í sig vegna þess að „hann og hans fólk hafi áður verið þrælar.“

Málið er komið inn á borð hjá lögreglunni í London og er til rannsóknar.

Konan virðist vera frá Evrópu og að sögn vitna mun hún hafa sagt við manninn „ekki snerta mig“ eftir að hann rakst óvart utan í hana á leið sinni inn í lestina.

Konan segir einnig: „Þú kallar mig rasista, ég er enginn rasisti. Þetta er ástæðan fyrir því að fólk kann illa við ykkur. Ég á svarta vini, ég er enginn rasisti.“

Og svo heldur hún áfram og segir: „Ef þú myndir haga þér eins og venjuleg manneskja, þá færir þú ekki í taugarnar á mér. Þú lætur svona því þið voruð einu sinni þrælar.“

Eftir þessi orð varð allt brjálað inni í lestinni og fleira fólk blandaði sér í málið. Hér að neðan má sjá myndbandið í heild sinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×