Erlent

Sænskur öryggisvörður þrýsti andliti ungs drengs í gólfið

Atli Ísleifsson skrifar
Á myndbandinu sem náðist af atvikinu sést hvernig drengurinn fer með orð úr íslömsku bæninni Shahada.
Á myndbandinu sem náðist af atvikinu sést hvernig drengurinn fer með orð úr íslömsku bæninni Shahada.
Lögregla í Svíþjóð hefur nú myndband til rannsóknar þar sem sést hvernig öryggisvörður á aðallestarstöðinni í Malmö heldur níu ára dreng niðri og þrýstir andliti hans í gólfið.

Öryggisvörðurinn hélt drengnum eftir að hann og tólf ára vinur hans ferðuðust í lestinni án þess að hafa greitt fyrir og var gert að yfirgefa lestina.

Á myndbandinu sem náðist af atvikinu sést hvernig drengurinn fer með orð úr íslömsku bæninni Shahada.

Myndbandið má sjá að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×