Erlent

Lést eftir að hún missti símann sinn í baðkarið

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Meðleigjandi konunnar fann hana en hún fór inn á baðherbergið þar sem henni fannst konan hafa verið óvenju lengi í baði.
Meðleigjandi konunnar fann hana en hún fór inn á baðherbergið þar sem henni fannst konan hafa verið óvenju lengi í baði. Vísir/Getty
Rússnesk kona lést í baðkari í íbúð sinni eftir að hún missti iPhone-símann sinn í baðkarið sem var í hleðslu á meðan hún baðaði sig.

Meðleigjandi konunnar fann hana en hún fór inn á baðherbergið þar sem henni fannst konan hafa verið óvenju lengi í baði.

„Ég fór inn og sá hana liggja í baðkarinu. Hún var náföl og síminn var í vatninu líka. Ég náði að toga hana upp úr en líkaminn hennar skalf allur vegna sjokksins,“ er haft eftir meðleigjandanum.

Sjúkraflutningamenn sem komu á staðinn reyndu að lífga konuna við en án árangurs. Ekki liggur endanlega fyrir hver dánarorsök hennar en flest bendir til þess að hún hafi látist vegna raflostsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×