Erlent

Mynd af samkynhneigðum Rússum fréttamynd 2014

Samúel Karl Ólason skrifar
Jon og Alex í St. Pétursborg.
Jon og Alex í St. Pétursborg. Mynd/MADS NISSEN
Mynd Danans Mads Nissen af tveimur samkynhneigðum mönnum í Rússlandi var valin fréttamynd ársins af dómnefnd World Press Photos. Dómnefnd keppninnar segir ástand samkynhneigðra í Rússlandi hafa versnað til muna á undanförnum árum og að þeir verði fyrir stöðugum árásum.

Alls voru 97.912 myndir sem teknar voru af 5.692 ljósmyndurum frá 131 landi lagðar inn í keppnina í ár. Verðlaun voru veitt í átta flokkum.

Hér að neðan má sjá nokkrar myndanna sem unnu til verðlaun. Myndirnar allar má skoða hér á vef World Press Photos.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×