Erlent

Parísarborg stefnir Fox News

Atli Ísleifsson skrifar
Anne Hidalgo, borgarstjóri Parísarborgar.
Anne Hidalgo, borgarstjóri Parísarborgar. Vísir/AFP
Parísarborg hefur stefnt bandarísku sjónvarpsstöðinni Fox News vegna ummæla „sérfræðings“ fréttastofunnar um að til væru svæði innan frönsku höfuðborgarinnar sem þeir sem ekki væru múslímar þyrðu ekki að fara inn á.

Borgarstjórinn Anne Hidalgo segir að hún muni ekki sætta sig við móðganir í garð borgar sinnar eða íbúa hennar.

Í útsendingu stöðvarinnar teiknaði „sérfræðingurinn“ Nolan Peterson svæði á kort af borginni sem hann kallaði „gettó“ og líkti þeim við Afganistan og Írak.

„Sérfræðingurinn“ Nolan Peterson.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×