Vilja refsa foreldrum fyrir að eiga of þung börn Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 11. febrúar 2015 15:05 Um 28 prósent barna í Púertó Ríkó eru of þung. vísir/getty
Lagt hefur verið fram frumvarp í Púertó Ríkó sem miðar að bættri heilsu barna í landinu. Verði frumvarpið að lögum verður refsivert fyrir foreldra að eiga of þung börn. Um 28 prósent barna í landinu eru of þung. Einn flutningsmanna frumvarpsins, Gilberto Rodriguez, segir í samtali við fréttastofu AP að mikilvægt sé að auka þekkingu foreldra á heilbrigðum lífsstíl. Foreldrar of þungra barna muni því fá fræðslu og ráðleggingar á heilbrigðu líferni og fái sex mánuði til að bæta lífsstíl barna sinna. Sé vandamálið enn til staðar að þeim tíma liðnum verði málinu vísað til barnaverndar. „Ef fulltrúar ákveða svo að ástand barnsins hafi enn ekki batnað sex mánuðum síðar geta foreldrarnir fengið sekt upp á 500 Bandaríkjadollara [66 þúsund krónur],“ sagði Gilbert. „Og sex mánuðum eftir það, ef vandamálið er enn viðvarandi, geta foreldrarnir verið sektaðir um 800 dollara [102 þúsund krónur] til viðbótar,“ bætti hann við. Frumvarpið er afar umdeilt og segja fjölmargir það rangt og yfirborðskennt. Barnalæknar hafa jafnframt gagnrýnt það en læknirinn Ricardo Fontanet segir að verði frumvarpið að lögum verði hlutirnir afar flóknir. Börn, sem og fullorðnir, glími við ofþyngd af ýmsum ástæðum, meðal annars vegna sjúkdóma.
Mest lesið Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Sagðir hafa fundið um 1.500 skilaboð milli Þorsteins og Jóhannesar Innlent Fá að leita í innrituðum farangri farþega að þeim fjarstöddum Innlent Vandræðalegur starfsmaður rak Björn Leví burt frá vínbúðinni Innlent Auðkýfingurinn ekki lengur grunaður um dauða eiginkonunnar Erlent Ný könnun: Ómarktækur munur á Viðreisn og Sjálfstæðisflokknum Innlent „Nauðsynlegt að bregðast við“ en aðgerðum fækkar Innlent Hafa birt myndskeið af síðustu augnablikum Sinwar Erlent Halla Hrund gengin til liðs við Framsókn og tekur sæti formannsins Innlent Ítrekuð brot gegn grunnskólastúlku nauðgun eftir allt saman Innlent Fleiri fréttir Ætlar ekki að leyfa Úkraínu að eignast kjarnorkuvopn Bar fram samsæriskenningar á fyrsta kosningafundinum Auðkýfingurinn ekki lengur grunaður um dauða eiginkonunnar Kim sagður ætla að senda tólf þúsund menn til Rússlands Telja árásir sænskra unglinga runnar undan rifjum Írana Hafa birt myndskeið af síðustu augnablikum Sinwar Dauði Sinwar tækifæri til að binda enda á stríðið Fall Sinwar „upphafið að endinum“ Staðfesta andlát leiðtoga Hamas Leiðtogi Hamas „líklega“ felldur „Einstök sýning“ á getu Bandaríkjanna í loftárásum Mætti á Fox í gær og á í viðræðum um viðtal við Rogan Biður um meiri pening vegna „fáránlegra“ laga Banna Ítölum að finna staðgöngumæður erlendis Hundrað ára Carter búinn að kjósa Eftirspurn eftir jarðefnaeldsneyti gæti náð hámarki á þessum áratug Opinberaði „siguráætlun“ sína á þingi Klófestu leigumorðingja sem dulbjó sig sem gamlan mann Metsekt fyrir að mismuna gyðingum og banna þeim að fljúga Lagði Trump til 10 milljarða króna á þremur mánuðum Halda áfram árásum á Beirút en með gult spjald frá Bandaríkjunum Hugmyndir uppi um „úrvinnslumiðstöðvar“ utan Evrópusambandsins Lauk afplánun fyrir teikningu dóttur sinnar Stofna herfylki skipað mönnum frá Norður-Kóreu Sagður ekki munu ráðast gegn olíu- né kjarnorkuinnviðum Kosningafundur breyttist í undarlegt diskótek Saka yfirvöld í Indlandi um ofbeldi og morð í Kanada Fyrrum Stasímaður dæmdur fyrir fimmtíu ára gamalt morð Taugaeitur til að drepa þúsundir manna skilið eftir á glámbekk Harris situr fyrir svörum hjá Fox News á morgun Sjá meira