Erlent

Lamadýr ollu usla í Bandaríkjunum – Myndband

Samúel Karl Ólason skrifar
Margir gerðu sig líklega til að ná dýrunum en allt kom fyrir ekki.
Margir gerðu sig líklega til að ná dýrunum en allt kom fyrir ekki.
Fjöldi fólks reyndi að ná lamadýrum sem léku lausum hala í Sun City í Bandaríkjunum og stöðvuðu umferð. Fréttaþyrlur fylgdust með aðferðum borgarbúa, sem vakið hafa mikla athygli á samfélagsmiðlum.

Margir gerðu sig líklega til að ná dýrunum en allt kom fyrir ekki. Á endanum tókst manni sem sat aftan á pallbíl að snara annað dýrið og hitt var handsamað skömmu seinna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×