Erlent

Á þriðja tug látnir í snjóflóðum í Afganistan

Atli Ísleifsson skrifar
Maður fær aðhlynningu eftir að hafa lent í snjóflóði í Afganistan.
Maður fær aðhlynningu eftir að hafa lent í snjóflóði í Afganistan. Vísir/AFP
Að minnsta 22 hafa farist í snjóflóðum í fjallahéruðum Afganistans síðustu daga. Mikil snjókoma hefur verið í Afganistan síðustu vikurnar.

Talsmenn yfirvalda segja að til viðbótar eru fleiri tugi manna fastir inni á heimilum sínum í Panjshir-héraði þar sem ástandið er hvað verst.

Snjóflóð eru tíð í fjallahéruðum Afganistans á veturna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×