Erlent

Leitin að Becky Watts: Líkamsleifar hafa fundist

Atli Ísleifsson skrifar
Rebecca Watts var sextán ára gömul.
Rebecca Watts var sextán ára gömul. Mynd/Avon&Somerset Police
Lögregla í Bretlandi hefur greint frá því að líkamsleifar hafa fundist á heimili í tengslum við leitina að hinni sextán ára Becky Watts. Málið hefur vakið mikla athygli í Bretlandi síðustu daga.

Í frétt Sky segir að mikil leit hafi staðið yfir í Bretlandi allt frá því að stúlkan hvarf af heimili sínu í Bristol þann 19. febrúar síðastliðinn.

28 ára karlmaður og 21 árs kona voru handtekin í gær vegna gruns um að hafa banað Watts. Þau höfðu áður verið handtekin í tengslum við málið vegna gruns um að hafa rænt henni. 

Síðustu daga hafa lögreglumenn sérstaklega rannsakað þrjú hús í Bristol, auk fjölda staða í nágrenni heimilis Watts.

Í tilkynningu frá lögleglu segir að fimm til viðbótar hafi nú verið handteknir vegna gruns um að hafa aðstoðað karlinn og konuna sem grunuð eru um að hafa banað stúlkunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×