Gengu í skrokk á fimmtán ára stúlku - Myndband Samúel Karl Ólason skrifar 13. mars 2015 11:29 Á myndbandinu má sjá hvernig hópur unglingsstúlkna ræðst á eina stúlku og berja á henni í nærri því þrjár mínútur.
Grimmilegt myndband af minnst fjórum stúlkum ganga illilega í skrokk á fimmtán ára stúlku í New York í Bandaríkjunum hefur verið birt á netinu. Á myndbandinu má sjá hvernig hópur unglingsstúlkna ræðst á eina stúlku og berja á henni í nærri því þrjár mínútur. Þar að auki er sparkað margsinnis í höfuð hennar þar sem hún liggur á gólfi skyndibitastaðarins eftir árásina. Fjöldi fólks, aðrir skólakrakkar sem og fullorðnir, fylgjast með árásinni án þess að reyna að stöðva hana. Margir fögnuðu og í myndbandinu má heyra einn grínast með að stúlkan væri dáin, þar sem hún liggur hreyfingarlaus á gólfinu. Á vef NY Daily News segir að starfsmenn McDonalds hafi hringt á neyðarlínuna, en enginn af þeim fjölmörgu sem fylgdust með atvikinu reyndi að tilkynna það. Þau fjölmörgu vitni sem fylgdust með hafa ekki viljað tjá sig um atvikið samkvæmt Daily News. Þá neitar stúlkan sem varð fyrir árásinni að tala við lögregluna. Þær stúlkur sem gengu í skrokk á henni, eru sagðar tengjast ofbeldisfullum glæpasamtökum á svæðinu. Samfélagsleiðtogar hafa beðið stúlkuna um að tala við lögregluna og segja að þeir muni standa við bakið á henni. Þá hafa hinar verið beðnar um að spara lögreglunni tíma og peninga og gefa sig fram. Daily News segja að stúlkurnar hafi ákveðið fyrirfram að hittast á þessum stað til að útkljá deilur. Á myndbandinu má sjá að fórnarlambið slær fyrst til einnar stúlkunnar, en þó hópast hinar saman gegn henni.
Mest lesið „Nauðsynlegt að bregðast við“ en aðgerðum fækkar Innlent Ítrekuð brot gegn grunnskólastúlku nauðgun eftir allt saman Innlent Fall Sinwar „upphafið að endinum“ Erlent Mál umdeilda skákborðsins ætlar engan endi að taka Innlent Stillt upp á alla lista Viðreisnar Innlent „Af hverju á ekki að bjarga börnunum?“ Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent „Fullt út úr dyrum“ á öllum fundum Samfylkingarinnar Innlent Sendur í leyfi Innlent Jón Magnús gefur kost á sér Innlent Fleiri fréttir Fall Sinwar „upphafið að endinum“ Staðfesta andlát leiðtoga Hamas Leiðtogi Hamas „líklega“ felldur „Einstök sýning“ á getu Bandaríkjanna í loftárásum Mætti á Fox í gær og á í viðræðum um viðtal við Rogan Biður um meiri pening vegna „fáránlegra“ laga Banna Ítölum að finna staðgöngumæður erlendis Hundrað ára Carter búinn að kjósa Eftirspurn eftir jarðefnaeldsneyti gæti náð hámarki á þessum áratug Opinberaði „siguráætlun“ sína á þingi Klófestu leigumorðingja sem dulbjó sig sem gamlan mann Metsekt fyrir að mismuna gyðingum og banna þeim að fljúga Lagði Trump til 10 milljarða króna á þremur mánuðum Halda áfram árásum á Beirút en með gult spjald frá Bandaríkjunum Hugmyndir uppi um „úrvinnslumiðstöðvar“ utan Evrópusambandsins Lauk afplánun fyrir teikningu dóttur sinnar Stofna herfylki skipað mönnum frá Norður-Kóreu Sagður ekki munu ráðast gegn olíu- né kjarnorkuinnviðum Kosningafundur breyttist í undarlegt diskótek Saka yfirvöld í Indlandi um ofbeldi og morð í Kanada Fyrrum Stasímaður dæmdur fyrir fimmtíu ára gamalt morð Taugaeitur til að drepa þúsundir manna skilið eftir á glámbekk Harris situr fyrir svörum hjá Fox News á morgun Hóta frekari aðgerðum eftir umfangsmiklar æfingar Leggur til að beita hernum gegn andstæðingum sínum Leggur upp í leit að lífvænlegum aðstæðum á Evrópu Verðlaunaðir fyrir rannsóknir á áhrifum stofnana á auðlegð þjóða Nota óbreytta Palestínumenn til að leita að sprengjum og gildrum Ekki grunaður um að hafa ætlað að drepa Trump Vilja endurreist æru þeirra sem neituðu að berjast Sjá meira