Erlent

Silvía drottning slasaðist á skíðum

Atli Ísleifsson skrifar
Silvía Svíadrottning.
Silvía Svíadrottning. Vísir/AFP
Silvía Svíadrottning slasaðist í skíðaslysi í Sviss fyrr í dag. Þetta staðfestir sænska hofið í samtali við Aftonbladet.

Margareta Thorgren, upplýsingafulltrúi hofsins, segir Silvíu líða eftir atvikum vel. Slæmt skyggni var í brekkunni þegar hún datt í brekkunni og slasaðist á hægri öxl. Ekki liggur fyrir hvort hún hafi þurft að gangast undir aðgerð.

Í frétt Aftonbladet kemur fram að konungshjónin ráðgeri að vera áfram í Sviss þó að drottningin muni að sjálfsögðu ekki vera mikið í brekkunum næstu dagana.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×