Erlent

Átta manna fjölskylda fannst látin

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/AP
Átta manns, einn maður og sjö börn, fundust látin á heimili sínu í Maryland í Bandaríkjunum í gær. Talið er að þau hafi látið lífið vegna kolmónoxíðeitrunar, frá rafali sem var í gangi á heimili þeirra. Lögregluþjónar fundu líkin eftir að samstarfsaðili mannsins hafði hringt í lögregluna þar sem hann hafði ekki mætt í vinnuna í nokkra daga.

Börnin, fimm stúlkur og tveir drengir, voru sex til fimmtán ára gömul. Lögreglan segir málið vera til rannsóknar. AP fréttaveitan ræddi við móðir mannsins sem sagði að komónoxíðeitrun orðið þeim aldurtila. Búið var að taka rafmagn af heimili þeirra vegna vangoldinna reikninga og því var rafallinn í gangi.

Faðirinn hét Rodney Todd og var 36 ára gamall, en hann er sagður hafa keypt rafalinn til að halda hita á fjölskyldu sinni á næturnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×