Erlent

Einn látinn eftir skotárás í háskóla í Norður-Karólínu

Atli Ísleifsson skrifar
Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Myndin tengist fréttinni ekki beint. Vísir/Getty
Einn er látinn eftir skotárás í háskóla í bænum Goldsboro í Norður-Karólínu fyrr í dag. Árásarmannsins er enn leitað.

Kim Best, talskona borgaryfirvalda, segir í samtali við AP að skotum hafi verið hleypt af á skólalóð Wayne háskólans í borginni. „Einn hefur látist og það er einn árásarmaður.“

Lögregla hefur lokað af svæðið í kringum skólann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×