Erlent

Fjórán ára drengur handtekinn vegna gruns um að skipuleggja hryðjuverk

Atli Ísleifsson skrifar
Drengurinn var handtekinn í Blackburn.
Drengurinn var handtekinn í Blackburn. Vísir/Getty
Lögregla í Bretlandi hefur handtekið fjórtán ára dreng í bænum Blackburn vegna gruns um að skipuleggja hryðjuverkaárás í Ástralíu.

Talsmaður lögreglunnar í Manchester greinir frá þessu.

Drengurinn var handtekinn nokkrum dögum eftir að lögregla í Ástralíu handtók fimm táninga í Melbourne vegna gruns um að þeir hugðu á hryðjuverkaárás gegn lögreglu á viðburði þar sem fórnarlamba fyrri heimsstyrjaldarinnar verður minnst.

Í frétt BBC segir að viðburðurinn verði haldinn við Anzac minnisvarðann þann 25. apríl.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×