Erlent

Skírnarathöfn Karlottu prinsessu þann 5. júlí

Atli Ísleifsson skrifar
Prinsessan hlaut nafnið Karlotta Elísabet Díana.
Prinsessan hlaut nafnið Karlotta Elísabet Díana. Vísir/AFP
Erkibiskupinn af Kantaraborg mun skíra Karlottu prinsessu í kirkju Maríu Magðalenu í Sandringham norðaustur af London þann 5. júlí næstkomandi.

Talsmaður bresku konungsfjölskyldunnar staðfesti þetta í morgun.

Karlotta er annað barn Katrínar og Vilhjálms Bretaprins og kom í heiminn þann 2. maí síðastliðinn.

Prinsessan hlaut nafnið Karlotta Elísabet Díana.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×