Fótbolti

Sjáðu mörkin sem Wilshire og Rooney skoraði gegn Slóvenum

Jack Wilshire skoraði gull af mörkum þegar England vann Slóveníu í dag, 3-2. Bæði mörkin voru með þrumufleyg utan vítateigs og sungu í netmöskvunum í marki Samir Handanovic, markverði Slóvena.

Wayne Rooney skoraði sitt 48. landsliðsmark og er því búinn að skora jafnmörg mörk og Gary Lineker á sínum ferli. Rooney á aðeins eitt mark í að jafna Bobby Charlton sem skoraði 49 landsliðsmörk fyrir England á sínum ferli. Markið hjá Rooney má sjá hér fyrir neðan.

Roy Hodgson, þjálfari Englendinga, var að vonum mjög sáttur við mörkin.

"Þetta voru engin smá mörk hjá Jack Wilshire, engin pot. Þau voru bæði frábær og Jack tók völdin á miðjunni í seinni hálfleik. Það var ánægjulegt að sjá það," sagði Hodgson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×