Erlent

Þrefalt morð á dönskum bóndabæ

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Lögreglan rannsakar málið sem morð.
Lögreglan rannsakar málið sem morð. Vísir/WPCOM/Heb
Danska lögreglan rannsakar nú andlát þriggja einstaklinga sem fundust á bóndabýli í Álaborg á norður-jótlandi í nótt. Talið er að fólkinu hafi verið ráðinn bani.

Lögreglu barst tilkynning um þrjú lík á landareigninni um klukkan tíu mínútur í þrjú að staðartíma. Lögreglan fór í kjölfarið á staðinn og fann líkin.

Litlar upplýsingar hafa fengist um málið og segir lögreglan að til að hlífa aðstandendum verði ekki upplýsingar gefnar fyrr en síðar í dag. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×