Erlent

Átta látnir og fimm saknað í flóðum í Utah

Atli Ísleifsson skrifar
Flestir hinna látnu eru meðlimir sértrúarsafnaðar Warren Jeffs.
Flestir hinna látnu eru meðlimir sértrúarsafnaðar Warren Jeffs.
Átta manns eru látnir og fimm er saknað eftir að mikil flóð hrifsuðu með sér ökutæki í Colorado City í Utah í Bandaríkjunum, nærri ríkjamörkunum að Arizona í gær.

Kevin Barlow, talsmaður slökkviliðs, segir að allir hinna látnu séu mæður og lítil börn. Yngsta fórnarlambið hafi verið fjögurra ára.

Í frétt CNN segir að flestir hinna látnu séu meðlimir sértrúarsafnaðar Warren Jeffs (FLDS).

Mikið úrhelli hefur verið á þessum slóðum síðustu daga.

Car washed up against central street. CCA

Posted by Guy Timpson on Monday, 14 September 2015



Fleiri fréttir

Sjá meira


×