Erlent

Skaut sambýliskonu og samstarfsmann til bana

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
vísir/getty
Maðurinn sem grunaður er um að hafa skotið samstarfsmann sinn til bana í háskóla í Mississippi í gærkvöldi er jafnframt talinn hafa ráðið sambýliskonu sinni bana. Hún fannst látin á heimili þeirra í morgun.

Maðurinn, Shannon Lamb, framdi sjálfsvíg að árásinni lokinni, þegar lögregla veitti honum eftirför. Hann sagðist ekki „ætla að fara í fangelsi“, tók byssu og skaut sig í höfuðið. Lamb hafði starfað sem prófessor í landafræði við háskólann frá árinu 2009. Ekki liggur fyrir hvað manninum gekk til en málið er nú í rannsókn lögreglu.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×