Erlent

453 pílagrímar látnir í Mekka

Atli Ísleifsson skrifar
Pílagrímar safnast saman fyrir utan Namira moskuna við fjallið Ararat.
Pílagrímar safnast saman fyrir utan Namira moskuna við fjallið Ararat. Vísir/AFP
Talsmenn sádi-arabískra yfirvalda hafa nú staðfest að 453 pílagrímar hið minnsta séu látnir eftir að hafa troðist undir fyrir utan Mekka.

Í frétt BBC segir að fólkið hafi látist í bænum Mina, um fimm kílómetrum austur af Mekka.

Hajj, trúarhátíð múslíma í Mekka stendur nú yfir og er búist við um þremur milljónum pílagríma á næstu dögum.

Múslímar þurfa að fara í pílagrímsferð til Mekku, hinnar heilagrar borgar í Sádi-Arabíu og fæðingarborg Múhameðs spámanns, að minnsta kosti einu sinni á ævinni ef fjárhagur og heilsa leyfa.

Í borginni Mina eru þrjár súlur sem pílagrímarnir kasta steinum að til að minnast þess þegar djöfullinn freistaði Ísmaels og Abrahams.

107 manns fórust við undirbúning hajj-hátíðarinnar fyrr í mánuðinum þegar krani féll á fjölda fólks við stóru moskuna í Mekka.

BBC hefur tekið saman lista yfir mannskæðustu slysin í tengslum við hajj-hátíðina síðustu árin:

  • 2015: 107 manns fórust þegar byggingakrani féll við stóru moskuna í Mekka
  • 2006: 364 pílagrímar láta lífið í troðningi þegar steinum var kastað að súlunum í Mina
  • 1997: 343 pílagrímar láta lífið og 1.500 slasast í eldsvoða
  • 1994: 270 láta lífið í troðningi
  • 1990: 1,426 pílagrímar láta lífið í troðningi í göngum sem liggja að heilögustu stöðunum í Mekka
  • 1987: 400 manns farast í aðgerðum sádi-arabískra yfirvalda gegn mótmælendum
Vísir/AFP



Fleiri fréttir

Sjá meira


×