Að venju fóru þrír leikir fram í NFL-deildinni í gær, á þakkargjörðardaginn í Bandaríkjunum, en fátt virðist geta stöðvað Carolina Panthers.
Carolina vann stórsigur á Dallas, 33-14, og hefur þar með unnið alla ellefu leiki sína á tímabilinu. Þetta var í raun síðasti möguleiki Dallas á að komast í úrslitakeppnina en kvöldið var hrein martröð fyrir stuðningsmenn liðsins.
Leikstjórnandinn Tony Romo, sem er nýkominn aftur eftir langa fjarveru vegna meiðsla, meiddist aftur í leiknum í nótt. Talið er að Romo, sem var frá vegna viðbeinsbrots, hafi brotnað aftur á sama stað eftir að hann var tekinn niður í leiknum af varnarmanni Charlotte.
Dallas hefur nú unnið þrjá leiki af ellefu en hin liðin í austurriðli Þjóðardeildarinnar hafa unnið aðeins fjóra eða fimm. En þar sem að Dallas tapaði öllum sjö leikjunum í fjarveru Romo fyrr á tímabilinu er fátt sem bendir til þess að liðið geti gert nóg á þeim fimm vikum sem eru eftir fram að úrslitakeppni til að vinna riðilinn.

Cutler hafði betur gegn Rodgers
Green Bay tapaði óvænt á heimavelli fyrir Chicago, 17-13. Þetta var annað tap Green Bay á heimavelli í röð sem hefur aðeins unnið einn af síðustu fimm leikjum sínum.
Aaron Rodgers, leikstjórnandi Green Bay, hefur ekki verið líkur sjálfum sér síðustu vikur og kastaði boltanum frá sér þegar tæpar fjórar mínútur voru eftir. Jay Cutler, leikstjóranndi Chicago, gerði svo nóg til að klára leikinn.
Green Bay missti þar með efsta sæti í norðurriðli Ameríkudeildarinnar en Minnesota er efst. Bæði lið eru með sjö sigra en Minnesota leikur um helgina gegn Atlanta á útivelli. Chicago er í þriðja sæti með fimm sigra og heldur í vonina um sæti í úrslitakeppninni.

Ljónin fóru illa með ernina
Detroit Lions er neðst í þessum sama riðli en í gær gersigraði liðið Philadelphia Eagles, 45-14. Philadelphia er hins vegar í sama riðli og Dallas, austurriðli Þjóðardeildarinnar, og er aðeins einum sigri frá toppliði New York Giants.
Sigurvegari hvers riðils fer áfram í úrslitakeppninna ásamt tveimur bestu liðunum þar á eftir úr hvorri deild, Þjóðardeildinni og Ameríkudeildinni.
Staðan í NFL-deildinni.
Fjöldamargir leikir fara að venju fram á sunnudaginn en leikur Seattle Seahawks og Pittsburgh Steelers verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.
