Erlent

Mikið óveður í Bretlandi

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Fjölmargir hafa þurft að yfirgefa heimili sín vegna stormsins Desmond.
Fjölmargir hafa þurft að yfirgefa heimili sín vegna stormsins Desmond. vísir
Breska veðurstofan hefur sent frá sér alvarlega viðvörun fyrir norðausturhluta Englands og Skotland vegna óveðursins sem nú gengur þar yfir. Búist er við að vindhraði fari upp í þrjátíu og fimm metra á sekúndu.

Úrhellisrigning hefur verið víða í dag og hefur stormurinn valdið miklum flóðum. Fjölmargir hafa þurft að yfirgefa heimili sín og er rafmagnslaust víða.

Gert er ráð fyrir að storminn fari að lægja í fyrramálið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×