Ólína Þorvarðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, gerði málefni flóttamanna að umtalsefni undir liðnum störf þingsins á Alþingi í morgun. Nefni hún að síðasta sólarhring hefði þingmönnum borist þúsundir bréfa frá almenningi vegna meðferðar á málefnum flóttamanna en mikið hefur verið fjallað um tvær albanskar fjölskyldur sem sendar voru úr landi í fyrrnótt ásamt fleirum sem sótt hefðu hér um hæli.
Sjá einnig: Segir albönsku fjölskylduna ekki hafa getað annað en unað niðurstöðunni
Málið hefur vakið mikla reiði í samfélaginu og sagði Ólína það ljóst að gjá væri að myndast á milli stjórnvalda og almenningsálitsins. Þá sættu stofnanir mikilli gagnrýni vegna meðferðar í einstökum málum og sagði Ólína það augljóst að halda þyrfti betur utan um málefni flóttamanna. Velti hún því upp hvernig þingið gæti komið þar að.
„Hér virðist vera það á ferðinni að það þarf að gæta betur að hagsmunum flóttamanna, leiðbeina þeim betur og aðstoða, en það hlutverk er sem stendur á hendi dreifðra aðila úti í samfélaginu,“ sagði Ólína og sagði þingið geta komið að því að bæta þetta.
„Ég held að það sem þingið getur lagt fram til bóta í þessu máli sé að leggja til stofnun umboðsmanns flóttamanna. Ég held að það sé tímabært að hafa á einni hendi þeirra hagsmuni, leiðbeina þeim og aðstoða í samskiptum við stjórnvöld og stofnanir.“
Komið verði á fót embætti umboðsmanns flóttamanna

Tengdar fréttir

„Lögin heimila fólki ekki að koma hingað og leita að betra lífi“
Minnst 23 voru fluttir til Albaníu og Makedóníu í nótt.

Segir albönsku fjölskylduna ekki hafa getað annað en unað niðurstöðunni
„Svo átti hann ekkert að fá læknisþjónustu áfram nema að borga fyrir það á fullu verði,“ segir vinnuveitandi og vinur albanska fjölskylduföðursins sem sendur var úr landi í nótt með fjölskyldu sinni og langveikum syni.

Albönsku fjölskyldurnar ákváðu að una niðurstöðu Útlendingastofnunar
Drógu kærur sínar til kærunefndar útlendingamála til baka og báðu um flutning til baka til Albaníu.