Erlent

Hljóp á móti umferð og skaut á lögreglu og vegfarendur

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Hér má sjá annan mannanna þar sem hann miðar byssu á bíla á hraðbrautinni.
Hér má sjá annan mannanna þar sem hann miðar byssu á bíla á hraðbrautinni.
Lögreglan í Ástralíu hefur birt myndband sem sýnir tvo menn á flótta undan lögreglunni. Á hraðbrautinni stökkva þeir út úr bílnum, annar þeirra dregur upp skammbyssu og skýtur á lögregluna.

Mennirnir taka svo á rás á móti umferðinni. Maðurinn með byssuna skýtur á bíl sem keyrir eftir hraðbrautinni og ökumaður bílsins neyðist til að hemla. Við það keyrir annar bíll aftan á hann.

Mennirnir sem eru á flótta undan lögreglunni reyna svo að ræna tveimur bílum á hraðbrautinni án árangurs. Bílstjóri annars bílsins keyrir á þann sem er með byssuna. Við það missir maðurinn byssuna en heldur áfram að hlaupa.

Báðir mennirnir voru síðar handteknir. Þeir hafa verið kærðir fyrir tilraun til manndráps en myndbandið má sjá hér að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×