Erlent

Fyrrverandi forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings ákærður

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Dennis Hastert
Dennis Hastert vísir/getty
Dennis Hastert, fyrrum forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, greiddi fyrrverandi samstarfsmanni sínum 3,5 milljónir dollara, tæplega 475 milljónir íslenskra króna á núverandi gengi, til að hjálpa sér að hilma yfir skandal úr fortíð sinni. Þegar FBI spurði hann um undarlegar úttektir af bankareikningum hans laug hann um málið. Chicago Tribune greinir frá málinu.

Hastert hefur verið ákærður vegna málsins og gæti, ef fundinn sekur, verið dæmdur í fimm ára fangelsi auk þess að greiða 250.000 dollara í sekt. Fyrstu úttektirnar af bankareikningi Hastert áttu sér stað árið 2010 og námu 1,7 milljónum dollara.

Í ákæru segir að greiðslurnar hafi runnið til „einstaklings A“ sem hefur þekkt Hastert í nær allt sitt líf. A bjó um tíma í Yorkville en þar var Hastert kennari og glímuþjálfari á árunum 1965 til 1981. Ekki er farið nánar út í hvers vegna Hastert greiddi A fyrir að þegja.

Hastert var þingmaður Illinois-ríkis frá 1987 til 2007 og var að auki forseti þingsins frá 1999-2007. Aðeins þrír forsetar hafa setið lengur en hann í þeim stóli en Hastert hefur setið lengst allra forseta úr röðum Repúblíkanaflokksins.


Tengdar fréttir

Hastert ætlar ekki að víkja

Dennis Hastert, forseti fulltrúardeildar Bandaríkjaþings, ætlar ekki að segja af sér vegna hneyslismáls sem nú skekur Repúblíkanaflokkinn. Upp komst um það að fyrrverandi fulltrúardeildarþingmaður, Mark Foley, hefði sent klúr tölvupóstskeyti til ungra drengja sem unnu fyrir þingið. Foley hefur nú sagt af sér og beðist afsökunar á framferði sínu. Hastert segist þó bera fulla ábyrgð á að ekki hafi verið gripið í taumana fyrr. Hann sagðist gera allt sem í sínu valdi stæði til að koma í veg fyrir að svona nokkuð gerðist aftur.

Segir af sér og fer í áfengismeðferð

Tekið er að hitna undir Denis Hastert, leiðtoga repúblikana í fulltrúadeild Bandaríkjaþings, vegna gagnrýni eigin flokksmanna á hvernig hann hefur tekið á hneykslismáli þingmannsins Marks Foley.

Hastert biðst afsökunar

Dennis Hastert forseti bandarísku fulltrúadeildarinnar hefur beðist afsökunar vegna kynlífshneykslis fyrrum þingmanns Repúblikana, Marks Foleys. Hann segist hins vegar ekki ætla að segja af sér. Hastert neitar fréttum þess efnis að hann hafi vitað af kynlífsskilaboðum Foleys en ekki gripið í taumana. Hann segist fyrst hafa fengið vitneskju um málið á föstudag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×